Hátíðarkveðja frá fólkinu á hringbraut

Starfsfólk sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar og hringbraut.is óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs, nú þegar hátíðirnar ganga í garð og Íslendingar njóta þess besta í viðurgjörningi og veisluhöldum.

Árið sem senn er að líða er það stærsta í sögu Hringbrautar og ástæða er til að þakka frábærar viðtökur sem verða okkur hvatning á nýju ári. Áhorf á þætti Hringbrautar hafa aukist ár frá ári og þá var settur meiri kraftur í netmiðil Hringbrautar sem festi sig í sessi á haustmánuðum sem einn vinsælasti og aðsóknamesti miðill landsins með tæplega 40 þúsund stakar heimsóknir á dag og 160 þúsund sem heimsóttu miðilinn minnst einu sinni. Fljótlega eftir þennan glæsilega árangur sameinaðist sjónvarpsstöðin Hringbraut Fréttablaðinu.

Nú starfar Hringbraut undir merkjum Torgs ásamt Fréttablaðinu og framundan eru spennandi tímar. Eins og áður er sælla að gefa en þiggja; stöðin kostar jú landsmenn ekki krónu - og þess þá síður ríkissjóð, enda gefur hún allt sitt efni.

Og áfram verður haldið á nýju ári, með öfluga íslenska dagskrárgerð að leiðarljósi sem verður jafnt aðgengileg í sjónvarpi og á vefnum hringbraut.is, sem geymir allt efni stöðvarinnar, og hann mun eflast enn frekar á nýju ári í samvinnu við Fréttablaðið undir merkjum Torgs.

Um leið og starfsfólk Hringbrautar þakkar öllum hundruðum viðmælanda sinna og þúsundum áhorfenda fyrir samstarfið, hjálpsemina og hvatninguna, óskar hún þeim sömu árs og friðar - og hlakkar til komandi árs.