Nokkuð misjafn bragur er á hátíðarhöldum landsmanna á sjálfan þjóðhátíðardaginn, hvort heldur er í veðri eða fasi, en sem dæmi má nefna er að talsverður fjöldi fólks hafði uppi hávær mótmæli á meðan forsætisráðherra flutti hátíðarræðu sína á Austurvelli í morgun.
Hátíðarhöld hafa annars farið friðsamlega fram um land allt, ef undan er skilin uppákoman við styttu afmælisbarnsins Jóns Sigurðssonar á tólfta tímanum í morgun. Dagskrá hátíðarhaldanna er þétt skipuð í vel flestum sveitarfélögum landsins með lúðrablæstri og leiktækjum við allra hæfi.
Skaplegast er veðrið fyrir norðan og austan þar sem sést til sólar í óvanalegum hita og stafalogni, en skýjað veður og stillt er syðra.
Hringbraut óskar landsmönnum öllum gleðilegs þjóðhátíðardags.