Hljómsveitin Hatari, sem flytur framlag Íslands í Eurovision söngvakeppninni í ár, var nýverið kölluð til fundar við Jon Ola Sand, framkvæmdastjóra keppninnar. Síðan þá hefur hljómsveitin haft hægar um sig og gætt orða sinna. Laufey Helga Guðmundsdóttir, ritari FÁSES og sérfræðingur um Eurovision, segir að svo virðist sem stjórnendur keppninnar hafi lagt Hatara línurnar og svo að segja stytt í beislinu.
Hatari stígur á svið í Tel Aviv í Ísrael í kvöld klukkan 19, þegar fyrri undankeppni Eurovision fer fram. Bundnar eru vonir við að sveitin verði fyrsta framlag Íslands til að komast í lokakeppnina í fimm ár, eða síðan Pollapönk komst í lokakeppnina í Danmörku árið 2014. Veðbankar spá því að Hatari komist örugglega áfram og lendi auk þess í sjötta sæti í lokakeppninni.
Hljómsveitin hefur vakið mikla athygli meðal fjölmiðla um allan heim síðan hún kom til Tel Aviv. Atriðið eitt og sér vekur athygli með kraftmiklum flutningi á lagi sem telst ekki hefðbundið fyrir keppnina og BDSM klæðnaði en ummæli sveitarinnar hafa þó vakið mesta athygli. Meðlimir Hatara hafa óhikað viðrað skoðanir sínar á hernámi Palestínu og aðskilnaðarstefnunni sem er við lýði í Ísrael. Sveitin hefur með því að gagnrýna stjórnvöld í Ísrael valdið fjaðrafoki, enda banna reglur keppninnar pólitík af hverju tagi.
Af ótta við að vera rekin úr keppni hafa meðlimir Hatara því ákveðið að draga í land og dansa ekki jafn mikið á línunni með ummælum sínum. „Nú hafa Hataramenn fundað með framkvæmdastjóra keppninnar Jon Ola Sand og þau virðast vera komin í styttri ól en áður. Tónninn hefur verið að breytast og þau eru hrædd um að ganga of langt og vilja feta réttu línuna. Þau hafa núna sagt á blaðamannafundum að þau muni fylgja reglum EBU og ekki vera með neinn beinan pólitískan áróður,“ segir Laufey Helga í samtali við RÚV.