Hatari gefur út nýtt lag – sjáðu myndbandið sem var tekið upp í palestínu

Hatari hefur ásamt palestínska tónlistarmanninum Bashar Murad, sem er samkynhneigður, gefið út nýtt lag sem ber heitið Klefi / Samed. Við sama tækifæri var gefið út myndband við lagið og ekki er annað að sjá en að það hafi verið tekið upp í Palestínu.

Á meðan þátttöku Hatara stóð í Eurovision söngvakeppninni heimsótti sveitin borgina Hebron í Palestínu og virðist sem sveitin hafi ekki setið auðum höndum og ráðist í gerð myndbandsins um svipað leyti.

Á fyrsta blaðamannafundi vegna keppninnar sögðust meðlimir Hatara vilja binda enda á hernám Ísraela á Vesturbakkanum í Gaza. Sögðu þeir eftir heimsókn sína til Hebron að þeir hefðu persónulega orðið vitni að aðskilnaðarstefnunni sem Ísraelar haldi uppi á svæðinu. Þá héldu þeir uppi treflum með palestínska fánanum þegar tilkynnt var um úrslit símakosningar lokakeppninnar. Uppskáru þeir mikla gagnrýni af hendi Ísraelsmanna og voru áminntir af Jon Ola Sand, framkvæmdastjóra Eurovision.

Lagið og myndbandið er ákall um frelsun Palestínu, þar sem fána þjóðarinnar er til að mynda veifað. Þá er lykill áberandi í myndmálinu, en hann táknar rétt Palestínumanna til þess að snúa aftur til svæða sem nú teljast til Ísraels og annarra hernumdra svæða, til að mynda Jerúsalem borgar. Ísrael bannar Palestínumönnum að snúa aftur til þessa svæða.

Sjáðu myndbandið hér: