Hatarar bjóða ókeypis ristilskoðun á rokkhátíð: „Ábyrgjumst þó ekki læknisfræðilega nákvæmni“

Svikamylla ehf, útgáfufyrirtækið á bak við hljómsveitina Hatara hyggst bjóða gestum hátíðarinnar Rokk í Reykjavík ókeypis ristilskoðun.

Meðlimir hljómsveitarinnar segjast þó að þeir „ábyrgist ekki læknisfræðilega nákvæmni“ slíkrar skoðunar.

Hljómsveitin Hatari sem keppti fyrir hönd Íslands í Eurovision árið 2019 er vel þekkt fyrir frumleg uppátæki sín en þetta verður þó að teljast með undarlegri hugmyndum hljómsveitarinnar.

Talið er að auglýsing Hatara á þessari fríu læknismeðferð sé tilkominn sem svar við ummælum Sölu Sól sem gagnrýndi kynjahalla hátíðarinnar nýverið.

Ekki er þó alveg ljós hverju Hatari vill ná fram með því að bjóða skoðunina en Matthías Tryggvi Haraldsson, söngvari Hatara segir að hún muni fara faglega fram „Öll umgjörð og utanumhald skimana verður með allra besta móti sem gerist hér á landi til að skapa einstaka upplifun fyrir skimaða,“ sagði Matthías.

Rokkhátíðin Rokk í Reykjavík mun fara fram í Kaplakrika þann 17. September og koma margar fræknustu rokkhljómsveitir landsins þar fram. Þar á meðal Skálmöld, Dimma, Sólstafir og Eyþór Ingi.