Mikil andstaða er nú við fyrirætlanir danskra stjórnvalda um að kaupa hátæknivopn af Ísrael. Vopnin eru sögð hafa verið sannreynd í stríði og hlýtur þá að vera átt við hernaðarárásir Ísraela gegn Gaza síðastliðið sumar þar sem öll alþjóðleg mannúðarlög voru brotin.
Vopnin eru framleidd af ísraelska vopnaframleiðandanum Elbit Systems sem er á svörtum lista fjárfestingasjóða víða um heim. Þetta kemur fram á fréttavef ruv.is. Þau eru sögð hafa verið prófuð í stríði og segja sérfræðingar við Kaupmannahafnarháskóla að þar hljóti að vera átt við hernað Ísraela gegn Palestínmönnum.
Nína Helgadóttir verkefnisstjóri Rauða krossins staðfesti í þættinum Heimsljósi hér á Hringbraut í vikunni að sérfræðingar Alþjóða Rauða krossins í mannúðarlögum teldu að Ísraelar hefðu brotið gegn öllum ákvæðum Genfarsamninganna í árásinni á Gaza í fyrra. Þar voru meðal annars gerðar sprengjuárásir á fjölda fjölbýlishúsa, sjúkrahúsa, skóla og á neyðarskýli þar sem íbúar höfðu leitað skjóls. Rúmlega 2000 manns féllu í valinn, og voru börn um fjórðungur fórnarlambanna.
Það þykir því skjóta skökku við að Danir áætli kaup á vopnum sem beitt hefur verið gegn óbreyttum borgurum í stríði þar sem mannréttindi og alþjóðleg mannúðarlög voru virt að vettugi.