Páll Magníusson fer yfir víðan völl í þætti sínum Þjóðbraut á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld en gestir hans eru nýkjörinn háskólarektor, formaður samtaka álfyrirtækja og ritstjóri norður í landi.
Jón Atli Benediktsson segir Páli frá því hvernig hann vill stjórna Háskóla Íslands næstu árin en hann hafði betur í rektorskjöri nýverið þar sem kjósa þurfti aftur á milli hans og Guðrúnar Nordal þar sem enginn frambjóðenda fékk hreinan meirihluta í fyrri umferð kjörsins. Ragnar Guðmundsson forstjóri Norðuráls og formaður Samáls, samtaka álfyrirtækja á Íslandi ræðir um umfang áliðnaðarins á Íslandi og hvaða þýðingu öll sú starfsemi hafi fyrir efnahag landsmanna og loks mætir Björn Þórláksson ritstjóri Akureyri vikublaðs til Páls og ræðir nýútkomna bók sína um blaðamennsku sem hefur þegar vakið athygli þótt hún sé ekki ennþá komin út.
Þjóðbraut er frumsýnd klukkan 20.00 á Hringbraut í kvöld.
Horfðu á klippur úr þætti kvöldsins hér: