Tap af grunnrekstri Hörpu á fyrri hluta þessa árs nam 169 milljónum króna. Allt síðasta ár var tapið 380 milljónir króna. Samanlagt tap síðustu 18 mánaða af grunnrekstri Hörpu nemur því 549 milljónum króna.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í morgun, en Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpu segir þar ljóst sé að rekstur Hörpu standi ekki undir sér miðað við óbreytt fasteignagjöld, en Hörpu er gert að greiða 188 milljónir króna í fasteignagjöld vegna fyrri hluta ársins: \"Við borgum fjórum sinnum hærri gjöld á fermetra en Kringlan og Smáralind,“ bendir Halldór á.
Hann segir þó að rekstur Hörpu fari batnandi, tapið á fyrri helmingi ársins 2015 hafi verið 40 milljónum króna lægra en á fyrri helmingi ársins 2014: \"Í fyrsta skipti er tapið talsvert lægra en fasteignagjöldin sem við borgum,“ segir Halldór við blaðið.
Fasteignagjöldin sem Harpa greiðir renna til Reykjavíkurborgar, sem á 46 prósenta hlut í Hörpu á móti 54 prósenta hlut ríkisins. Ríkið og Reykjavíkurborg greiða um milljarð króna árlega af 19,5 milljarða króna skuldabréfi sem gefið var út til að fjármagna byggingu Hörpu. Þar að auki hafa ríkið og Reykjavíkurborg skuldbundið sig til að greiða beint til reksturs Hörpu um 170 milljónir króna árlega út árið 2016.