Harmleikurinn í noregi: var í nálgunarbanni

Yfirvöld í Noregi hafa farið fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir Íslendingnum sem liggur undir grun um að hafa skotið og drepið bróður sinn, Gísla Þór Þórarinsson. Þetta átti sér stað í Mehamn í Finnmörku í Noregi.

Það var rétt fyrir klukkan hálf sex í gærmorgun sem lögreglu barst tilkynning um að maður hafi orðið fyrir skoti. Lögregla kom skömmu síðar á vettvang og fannst maðurinn alvarlega slasaður. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var maðurinn því úrskurðaður látinn á staðnum. Mennirnir tveir voru svo handteknir stuttu seinna, eftir að lögreglu hafði verið tilkynnt um bíl í skurði skammt frá Mehamn.

Þá greina norsk lögregluyfirvöld frá því að bróðirinn hafi verið í nálgunarbanni gegnum hinum láta frá 17. apríl. Í norskum miðlum segir að hinn grunaði hafi verið úrskurðaður í nálgunarbann vegna hótana í garð hins látna.