„Kæra fjölskylda og vinir! Sá sorglegi atburður hefur átt sér stað að yndislega Guðrún okkar lést þann 29. október í Þrándheimi í Noregi. Það eina sem hún vildi var að koma heim til fjölskyldunnar og ætlum við því að flytja hana heim til Íslands.“
Þannig hljómar tilkynning frá aðstandendum Guðrúnar. Vegna mikils kostnaðar hafa þeir óskað eftir aðstoð til að flytja jarðneskar leifar hennar heim. Guðrún var aðeins 27 ára þegar hún lést. Stofnaður hefur verið styrktarreikningur þar sem kostnaður við flutninginn er mikill. Í tilkynningunni segir enn fremur:
Vegna mikils kostnaðar við slíkan flutning langar okkur að biðla til ykkar um aðstoð og hrinda af stað söfnun. Allur styrkur er vel þeginn og margt smátt gerir eitt stórt.
Guðrún var ein hjartahlýjasta manneskja sem við áttum í okkar lífi og hún vildi svo sannarlega lifa en þetta var bara hörmulegt slys sem enginn gat komið í veg fyrir.“
Stofnuð hefur verið stuðningsgrúppa á Facebook en hana má finna hér. Í lýsingu á grúppunni segir:
„Guðrún María ólst upp í Smárahverfi í Kópavogi frá 7 ára aldri eftir að hafa búið í Noregi sem barn. Hún var vinamörg enda góð og hlý við alla. Hún þurfti mikið knús og athygli en þróaði eins og mörg önnur börn fljótt með sér kvíða, kvíðann sem á endanum leiddi hana út í heim neyslunnar.
Guðrún vildi ekkert heitar síðustu daga en að koma heim til fjölskyldunnar sinnar og var það svo sannarlega planið en endaði með skelfilegum afleiðingum sökum mikillar vanlíðanar. Guðrún vildi lifa.
Hún á skilið að koma heim eins og hún er og viljum við fjölskyldan hennar að hún verði kistulögð hér á Íslandi. Það er kostnaður sem því fylgir sem við þörfnumst hjálpar við að standa undir.“
Reikningsnúmer: 0370-22-019156
Kennitala: 040965-5059
--
IBAN númer: IS820370220191560409655059
Adresse: Arion banki, Smaratorg, 201 Kopavogur, Island
SWIFT: ESJAISRE
Svo viljum við þakka öllum okkar nánustu fyrir allan þann stuðning sem þau hafa veitt á þessum erfiðu tímum.