Þorsteinn Sæmundsson fyrrverandi alþingismaður hefur ákveðið að fylgja Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni úr Framsóknarflokknum.
Þorsteinn var ágætlega liðinn á þingi á sínum tíma, en taldist ekki til skörunga. Tvenn ummæli hans þykja sérstaklega eftirminnileg.
Annars vegar um nauðsyn þess að reisa og starfrækja áburðarverksmiðju svo að ungt fólk fengi störf við hæfi.
Hin féllu í tengslum við leiðréttinguna svokölluðu, þegar tugmilljörðum var veitt úr ríkisjóði óháð því hvort viðtakendur þyrftu á fénu að halda.
Þorsteinn var mikill stuðningsmaður þessara áforma og rökstuddi afstöðu sína meðal annars þannig, að fjöldi kvenna hefði ekki lengur efni á því að láta lita á sér hárið. Milljarðarnir úr ríkissjóði yrðu til þess að þær gætu aftur notið þeirra sjálfsögðu mannréttinda.
Þorsteini varð að ósk sinni, hárgreiðslustofum landsins vonandi til nokkurrar gleði.