Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að ef stjórnvöld fari ekki að taka kröfum grasrótarinnar í verkalýðshreyfingunni alvarlega þá verði átök strax upp úr áramótum sem ekki hafi sést í áratugi. Kjarasamningar losna um næstu áramót. Ragnar Þór segir auðvelt að stöðva rekstur stofnanna og loka flugvöllum með fámennum aðgerðum án þess að fara í allsherjarverkfall.
Hann segir að forustufólk VR, Eflingar, verkalýðsfélags Akraness og Framsýnar á Húsavík hafi rætt um að mynda bandalag um að komið verði á samfélagssáttmála til þriggja eða fjögurra ára sem fæli í sér kerfisbreytingu. Þar yrði tekið á hækkun lægstu launa, persónuafslætti, vöxtum og verðtryggingu svo eitthvað sé nefnd.
Eyjólfur Árni Rafnsson formaður Samtaka atvinnulífsins hvetur til yfirvegunar í samtali við Morgunblaðið. „Ég trúi ekki öðru en fólk sýni yfirvegun og skynsemi þegar í alvöruna er komið. Að mínu mati eru ummæli formanns VR ekki af þeim toga,“ segir hann.