Valdataka nýs forseta í Zimbabwe veldur ekki aldahörfum og mun nýi forsetinn skjótt færa stjórnskipun og efnahagsgrundvöll Zimbabwe til þess sem gilti í stjórnartíð Robert og Grace Mugabe.
Það sem stundum er kallað einu orði \"afrískt lýðræði\" - mikið hunang í munni vestrænna menntamanna - er orð sem hefur allmikinn sannleika í sér fólginn. Þjóðerni skiptir þar engu máli. Ættbálkar skipta öllu.
Það sem ræður öllu í daglegu lífi fólks í Zimbawe er ættbálkur þess. Alþýða manna í Zimbabwe hefur líkast til glögga hugmynd um hvað er að gerast í landinu.
Lýðræði er ekki að taka við. Stjórnmál í Zimbanwe munu hér eftir sem hingað til snúst um sambúð ættbálkanna í landinu.
Oft er ómögulegt að finna heila brú í stjórnmálum Zimbabwe þessa stundina án þess að kynna sér ítök ættbálkanna sem eiga hlut að máli. Eitt er víst. Ný stjórn í Zimbabwe stendur völtum fótum þrátt fyrir bjartsýni stjórnmálaskýrenda.
Þegar hún riðar til falls breytist framkoma nýja forsetans og hinna liðsodda Zimbabwe. Sáttfýsi þeirra breytist stig af stigi úr kvíða í hættugrunn og úr ótta í hreina skelfingu.