Harðnandi átök á vinnumarkaði

Verkalýðsforingjarnir Aðalsteinn Á. Baldursson hjá Framsýn í Þingeyjarsýslum og Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR eru gestir Páls Magnússonar í þætti hans Þjóðbraut á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld klukkan 20.00. Þar verða átökin á vinnumarkaði rædd í þaula, en sjaldan eða aldrei hefur hlaupið jafn mikil harka í vinnudeilur hér á landi og nú á útmánuðum.


Aðalsteinn hefur svo að segja sprengt upp samstöðu á meðal atvinnurekenda en fjlöldi fyrirtækja á hans umráðasvæði vill semja strax við Framsýn til að komast hjá kostnaðarsömu verkfalli.


Ólafía býr tugþúsundir félagsmanna sinna undir verkfall sem er allt eins líklegt í stöðunni og samningar, en það ræðst í næstu viku hvort samningsgrundvöllur er millum VR og viðsemjenda félagsins, en ellagar er ekkert annað í stöðinni en að undirbúa aðgerðir að sögn formannsins.


Þáttur Páls hefst sem fyrr segir klukkan 20.00 og er opinn öllum landsmönnum, þeim að kostnaðarlausu á rásum 7 á Símanum og 25 á Vodafone, svo og 35 á örbylgjunni.  


Klippur úr þætti páls er hægt að horfa á hér: