Harðlínuöfl, þjóðrembingur og einangrunarsinnar: „skipbrot æsingamannanna er algjört“

„Starfshópur sem utanríkisráðherra skipaði að beiðni þrettán þingmanna um mat á EES samningnum skilaði skýrslu sinni í vikunni. Verkefnið var að leggja mat á ávinning Íslands af þátttökunni í EES-samstarfinu. Vandað var til verka hjá starfshópnum undir forystu Björns Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra. Rætt var við 147 manns frá fjórum ríkjum, aðildin sett í sögulegt samhengi, og ítarlega farið yfir flesta þætti framkvæmdar EES-samningsins.“

Þetta segir Davíð Stefánsson ritstjóri Fréttablaðsins í leiðara í blaði dagsins. Davíð segir niðurstöðuna mjög eindregna. Aðild að innri markaði Evrópu hefur verið mikið gæfuspor fyrir Ísland. Án EES-samningsins væri hætta á einangrun, stöðnun og afturför í íslensku þjóðlífi. Þá segir Davíð að með þátttöku í innri markaði Evrópu hafi íslenskt þjóðfélag tekið miklum stakkaskiptum. Ritstjórinn segir:

„Í aldarfjórðung hefur fólki og fyrirtækjum verið tryggð jöfn staða, lagalegur grunnur og fyrirsjáanleiki. Stuðlað hefur verið að nýsköpun, samkeppnishæfni og velsæld.“

Ekki ögrun

Davíð gagnrýnir einnig Davíð, Miðflokkinn og harðlínuöfl í Sjálfstæðisflokknum og segir að átakanleg umræða um þriðja orkupakkann hafi sýnt að stjórnmálamenn, og voru þar fremstir í flokki þingmenn Miðflokksins sem sáu eingöngu „ásælni erlendra þjóða í stað tækifæra til samstarfs.“ Davíð heldur áfram:

„Skýrslan segir aðkomu Íslendinga að fagstofnunum Evrópusambandsins ekki ögrun við þjóðina heldur tækifæri til aukinna áhrifa á mótun mála innan EES.“

Þá bendir Davíð á að í skýrslunni segi einnig:

„ ... að með fjölþjóðasamvinnu gætum við mun betur íslenskra hagsmuna en með gerð tvíhliða samninga. EES myndar ramma fyrir víðtæka lögbundna fjölþjóðlega samvinnu í Evrópu: „Einstakir tvíhliða samningar eru, þótt mikilvægir séu, aldrei jafngildir aðild að fjölþjóðlegu markaðsbandalagi. … Sameiginlegar leikreglur viðskipta með viðurkenndum gjaldmiðli skapa skilvirkni og stuðla að framþróun atvinnulífs.“

Fer þetta, að mati Davíðs gegn furðulegri stefnu margra forystumanna íslenskra stjórnmála að alþjóðatengsl Íslands eigi að byggjast að mestu á tvíhliða samningum. Segir Davíð að lítið fari síðan fyrir tækifærum Breta við útgöngu úr Evrópusambandinu. Davíð heldur áfram:

„Þeir sem óskuðu eftir skýrslunni ráku flestir harða andstöðu gegn þriðja orkupakkanum. Þar lögðust allir á eitt: Morgunblaðið, hávær harðlínuöfl í Sjálfstæðisflokknum og Miðflokkurinn. Þar drógu talsmenn einangrunar og þjóðrembu í efa nauðsyn alþjóðasamvinnu og fundu sér stöðugt tilefni til að mótmæla alþjóðlegum skuldbindingum og Evrópusamvinnu.“

Davíð segir að endingu að baráttan hafi haft þveröfug áhrif og afleiðingar. Sókn þessara afla var stöðvuð um leið og kannanir hafi sýnt að flestir Íslendingar telja hagsæld byggjast á alþjóðlegri samvinnu.

„Skipbrot æsingamannanna er algjört,“ segir Davíð og bætir við að lokum:

„Ef eitthvað er hefur stuðningur við aðild að innri markaði Evrópu aukist. Samsæriskenningar stóðust ekki rök sem byggðust á málefnalegri þekkingu og yfirvegun. Þar er skýrslan um EES sterkt framlag.“