Búast má við að nýtt lagafrumvarp þar sem tekið verði harðar á viðurlögum gegn ölvunar- og vímuefnaakstri en nú er verði lagt fram á vorþingi Alþingis eftir áramót.
Þetta kom fram hjá innanríkisráðherra, Ólöfu Nordal, í sérstakri umræðu á Alþingi í dag að beiðni þingmanns Framsóknarflokksins, Elsu Láru Arnardóttur.
Fleiri þingmenn en færri töluðu fyrir hertum viðurlögum enda er búið að samþykkja þingsályktunartillögu þar um. Fram kom hjá Vilhjálmi Árnasyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, að ungir ökumenn sem ekki gerðu sér grein fyrir hættu af ölvunarakstri væru sérstakt vandamál, enda væru þeir beinlínis oft hvattir af félögum að aka fullir. Hinn hópurinn sem einkum ylli tjóni með akstri undir áhrifum væru þeir ökumenn sem hefðu misst dómgreind til að meta hvort það væri í lagi að aka eða ekki, vegna eigin ölvunarástands.
Margir þingmenn lýstu mikilvægi aukinna forvarna og aukins eftirlits hjá lögreglu.