Sjónvarpskonan Sirrý heimsækir Kristínu Eysteinsdóttur og hennar fólk í Borgarleikhúsinu í kvöld og kynnist þar uppsetningu á óvenjulegu og hárbeittu leikhúsverki sem frumsýnt verður annaðkvöld.
Það verður sumsé kíkt í boxhringinn á Nýja svioðinu þar sem þetta leikrit, sem At nefnist, er fært upp með barvör, en leikhússtjórinn annast sjálf uppsetningu verksins sem er ekkert endilega fyrir viðkvæmt fólk, en þar er fjallað um samkeppni á vinnumarkaði og hversu langt fólk er tilbúið að ganga til að halda í stöðu sína. Tvö störf. Þrír umsækjendur. Rafmagnað andrúmsloft. Rætt við leikararna í boxhringnum: Þorvald Davíð Kristjánsson, Eystein Sigurðsson, Völu Kristínu Eiríksdóttur og Val Frey Einarsson..
Kristín ræðir líka leikhúsveturinn á enda sem er uppfullur af áhugaverðum uppsetningum.
Í síðari hluta þáttarins verður rætt um vetrarstarfið í Hannesarholti á Grundarstíg. Heilsað upp á Ragnheiði Jónu Jónsdóttur sem rekur Hannesarholt. Og einnig koma í heimsókn Gissur Páll Gissurason og fleiri söngvarar úr Íslensku óperunni sem eru að æfa ,,Rakarinn frá Sevilla” sem frumsýnt verður 17.október. Þau bjóða upp á kynningu á verkinu í Hannesarholti á laugardag. Tónlist, matur og spjall um Brúðkaup Fígarós.
Umsjón með þættinum hefur Sirrý og myndatökumaður er sem fyrr Steingrímur Jón Þórðarson.