Haraldur minn­ist móð­ur sinn­ar: „Sval­ast­a mann­eskj­a sem ég hef þekkt“

At­hafna­maðurinn og frum­kvöðullinn Haraldur Þor­leifs­son minntist móður sinnar í hjart­næmri færslu á Twitter í gær.

Haraldur birti mynd af móður sinni, Önnu Jónu Jóns­dóttur, en hún lést langt fyrir aldur fram 31 árs að aldri árið 1988 þegar Haraldur var sjálfur að­eins 11 ára.

„Í dag eru þrjá­tíu og fjögur ár síðan mamma mín dó. Svalasta manneskja sem ég hef þekkt,“ skrifaði Haraldur við myndina.

Haraldur er stofnandi fyrir­tækisins Ueno sem hann seldi til Twitter fyrir háar fjár­hæðir. Hann hefur látið til sín taka í góð­gerðar­málum undan­farið og er for­svars­maður verk­efnisins Römpum upp Reykja­vík.

Þá mun Haraldur opna kaffi­húsið Anna Jóna í mið­bæ Reykja­víkur næsta haust en staðurinn heitir eftir og er til­einkaður minningu móður hans.