„Umræða um orkupakka snertir þá grundvallarþætti sem tengja okkur saman sem þjóð. Rétt eins og landhelgin og sjálfbær nýting hennar, eignarhald á landi, bújörðum og náttúruperlum landsins. Yfirráð yfir orkunni eru okkur heilög. Það er því alvörumál að vera ætlað að vilja framselja yfirráð og eignarhald á orkuauðlindum landsins. Ekkert er fjær okkur.“
Þetta segir Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í grein í Morgunblaðinu. Til að stuðla að sáttum í deilunni vegna þriðja orkupakkans kveðst Haraldur hafa einfalda lausn sem allir ættu að geta sætt sig við. Haraldur segir:
„Sú hugmynd er hér sett fram að áskilja það í innleiðingu orkupakka 3 að setja lagaákvæði um að slík tenging [við raforkukerfi annarra landa] verði aðeins með samþykki þjóðarinnar í sérstakri atkvæðagreiðslu. Sæstrengur og bygging grunntengivirkja fyrir slíka tengingu verði því aðeins að meirihluti landsmanna samþykki það í atkvæðagreiðslu.“
Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra fyrir Sjálfstæðisflokksinn vekur athygli á greininni á bjorn.is og segir:
„Sameinist stjórnarflokkarnir um hugmyndina sem Haraldur hreyfir hér allrar. Þá yrði í fyrsta sinn lögfestur skýr og einfaldur rammi um ferli sem yrði að virða kæmi fram ósk um að hér yrðu reist grunnvirki vegna sæstrengs. Slík íslensk skilyrði stæðust EES-samninginn og ekkert í honum knýr stofnanir EFTA til að gera athugasemdir við íslensk lög í þessa veru.“