Haraldur er látinn

\"\"Har­ald­ur Sveins­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Árvak­urs, út­gáfu­fé­lags Morg­un­blaðsins, er fallinn frá. Hann lést á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Brákar­hlíð í Borg­ar­nesi síðastliðinn laug­ar­dag, 21. sept­em­ber, þá 94 ára að aldri. Þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins.

Har­ald­ur var fram­kvæmda­stjóri Morg­un­blaðsins á árunum 1968-1995. Hann átti jafn­framt sæti í stjórn Árvak­urs um ára­bil. Þá var hann formaður nefndarinnar 1954-1969 og árin1995-2005.

Har­ald­ur sat lengi í stjórn hesta­manna­fé­lags­ins Fáks og Lands­sam­bands hesta­manna­fé­laga 1961-79 og var gerður að heiðurs­fé­laga Lands­sam­bands hesta­manna­fé­laga árið 2011. Hafði hann áður hlotið gull­merki þess. Á vef mbl.is segir að utan starfs­ins hafi hesta­mennsk­an átt hug Har­ald­ar, sem ung­ur eignaðist jörðina Álfta­nes á Mýr­um, þar sem hann var með hross og stundaði bú­skap.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Har­ald­ar er Agnes Jó­hanns­dótt­ir, f. 1927, hús­freyja og eignuðust þau fjögur börn.