Fylgi Sjálfstæðisflokksins ýmist eykst eða dregst saman í einstaka kjördæmum, frá kosningunum 2013, samkvæmt skoðanakönnuninni sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir Morgunblaðið.
Mesta fylgisaukningin er í Norðvesturkjördæmi, þar sem Haraldur Benediktsson tók við forystu af Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis. 2013 fékk flokkurinn fjórðung atkvæða en mælist nú með meira en þriðjung. Haraldur Benediktsson er því hástökkvari Sjálfstæðisflokksins miðað við þessar forsendur.
Í Norðausturkjördæmi bætir Sjálfstæðisflokkurinn nokkru við sig en tapar nokkru í Suðurkjördæmi og í Reykjavík suður, þar sem Ólöf Nordal varaformaður flokksins er í öndvegi.
| Sjálfstæðisflokkur | 2013 | Nú | Breyting | Oddviti nú | Oddviti áður | |
| Norðvesturkjördæmi | 25% | 34% | 36% | Haraldur Benediktss. | Einar K. Guðfinnsson | |
| Norðausturkjördæmi | 20% | 23% | 13% | Kristján Þór Júlíusson | Kristján Þór Júlíusson | |
| Suðvesturkjördæmi | 31% | 30% | 2% | Bjarni Benediktsson | Bjarni Benediktsson | |
| Reykjavík norður | 23% | 23% | 1% | Guðlaugur Þór | Illugi Gunnarsson | |
| Suðurkjördæmi | 28% | 24% | -16% | Páll Magnússon | Ragnheiður Elín | |
| Reykjavík suður | 27% | 22% | -20% | Ólöf Nordal | Hanna Birna Kristjánsd. |