Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við Háskóla Íslands, vill leggja niður forsetaembættið í núverandi mynd. Í færslu á Facebook-síðu sinni segist Hannes hafa lagt þá hugmynd fram árið 1987 og að forseta Alþingis yrði falið að taka við þjóðhöfðingjaskyldunum. Þær eru enda sáraeinfaldar að mati Hannesar og felast í því að hengja krossa á fólk tvisvar á ári, skrifa undir skjöl átta klukkustundir á mánuði, taka á móti gestum fjórum sinnum í mánuði og fara í einhverjar heimsóknir til útlanda þrisvar á ári.
„ Í Sviss skiptast ráðherrar á að gegna forsetaskyldum, hver í eitt ár. Bessastöðum mætti breyta í samastað fyrir sérstakt lista- og vísindafélag Íslendinga (hliðstæðu frönsku akademíunnar). Í stað þess að þeir feðgar Einar Kárason og Kári Stefánsson sæktu boð hjá forsetanum og hneigðu sig fyrir honum, héldu þeir boðin sjálfir og hneigðu sig hver fyrir öðrum. Úr því að við afhrópuðum kónginn, ættum við að leiða listir og vísindi til öndvegis á hinu forna höfuðbóli, sem Snorri Sturluson átti og kóngur sölsaði undir sig, eftir að hann hafði látið vega Snorra 1241," segir Hannes í færslunni.
Í annarri færslu um sama mál segir Hannes að forsetaskrifstofan að Sóleyjargötu 1 gæti verið tilvalinn embættisbústaður fyrir forseta þingsins, sem væri um leið þjóðhöfðingi, enda væri það í samræmi við stolt okkar yfir því að eiga elsta þjóðþing í heimi. „Tvær aðrar þjóðir hafa skynsamlegan hátt á: Nýja Sjáland hefur Bretadrottningu sem þjóðhöfðingja, Sviss einn ráðherra ríkisstjórnarinnar, ár í senn. Úr því að við afþökkuðum þjónustu ættar Margrétar drottningar (hvort sem það var skynsamlegt eða ekki), er best að leita til forseta Alþingis,“ ítrekar Hannes.