Hannes þarf að fara í sóttkví: Segir það Svandísi að kenna

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við Háskóla Íslands, segir að hann þurfi að fara í sóttkví eftir að hann kom til landsins. Það sé ekki við neinn að sakast nema Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra þar sem hún hafi ekki útvegað bóluefni fyrr. Hannes segir í færslu á Facebook að hann sé gramur yfir þessu.

„Mér til nokkurrar gremju (en ekki er við neinn að sakast nema Svandísi að hafa ekki útvegað bóluefni fyrr) sé ég, að ég fullnægi eftir vinnuferð til Spánar ekki alveg skilyrðunum til að losna við sóttkví, þegar ég kem til landsins á sunnudag,“ segir hann. „Það þurftu að líða 14 daga frá seinni bólusetningunni, en ég fékk hana 9. júní og kem heim 20. júní. Ég þarf því að fara í stutta sóttkví heima, en ég tók PCR próf hér á Spáni og reyndist neikvæður, eins og við var að búast.“

Hannes segir að hann ætli ekki að fá neinar undanþágur, líkt og Daði og Gagnamagnið fengu þegar hópurinn fékk bóluefni fyrir för sína til Rotterdam í maí.

„Ég fer auðvitað eftir öllum reglunum og reyni ekki að fá undanþágu eins og Eurovision-fararnir sóttu um og fengu. Það eiga allir að vera jafnir fyrir lögunum.“