Hannes Steindórs: „Vægast sagt stórt verk fram undan fyrir landann ef á að taka á þessum húsnæðisvanda“

Hannes Steindórsson, fasteignasali, segir einungis eina lausn við fasteignavandanum hér á landi og að hún sé í nokkrum liðum.

Þetta kemur fram í pistli Hannesar í Morgunblaðinu.

Í pistlinum fer Hannes yfir húsnæðisvandann hér á landi og segir meðal annars að samkvæmt fréttum séu um 25 þúsund manns á þrítugsaldri hér á landi sem búa enn í foreldrahúsum. „Ekki veit ég hvað er eðlilegt í þeim efnum en er nokkuð viss um að þrítugan og þaðan af eldri langar ekki að búa í foreldrahúsum mikið lengur.“

Hannes telur mjög mikilvægt að bregðast við húsnæðisvandanum strax en til þess þurfi heildsteitt tíu ára plan.

„Það þarf að fara í alla þessa liði strax ef við viljum ná í skottið á okkur og koma fasteignamarkaði í jafnvægi. Það þarf að brjóta land og búa til lóðir. Þétta byggð, þar sem það er hægt. Stytta alla ferla um helming, allt of langur tími sem fer í að fá teikningar samþykktar, byggingarleyfi, eignaskiptasamninga og annað því tengt.

Lánastofnanir verða að lána til húsbygginga í kreppu, þegar það kemur kreppa í einhvern tíma þá stoppar allt og við endum með sama vandamál,“ segir Hannes í pistli sínum.

Þá sé byggingartími allt of langur og hann þurfi að stytta. Slaka þurfi á íþyngjandi byggingarreglugerðum og bendir Hannes á að það hafi verið gert fyrir ákveðin félög nú þegar.

Sveitarfélög þurfi að lækka lóðaverð og vextir þurfi að lækka.

„Ríkið, sveitarfélögin, HMS og lánastofnanir þurfa í sameiningu að leggjast á eitt og gera heildstætt 10 ára plan. Það þarf að flytja inn gríðarlegt magn af vinnuafli þegar atriðin hér að ofan eru orðin að veruleika því að raunin er sú að við höfum ekki mannskap né innviði til að byggja meira en 2.500 til 3.000 íbúðir á ári. Það er vægast sagt stórt verk fram undan fyrir landann ef á að taka á þessum húsnæðisvanda,“ bætir Hannes við í pistli sínum.

Hannes segir í lok pistilsins að hann telji að það þurfi að byggja 3.500 eignir á ári næstu tíu árin og til að það myndi ganga upp þyrftu 3.000 eignir að fara í sölu á ári hverju.