Hannes og pétur örn kættu lóu

Það skorti ekki hlátrasköllin í viðtalsþættinum Lóa og lífið í gærkvöld, en þar fékk umsjárkonan Þórdís Lóa Þórhallsdóttir til sín hljómsveitarfélagana Hannes Friðbjarnarson og Pétur Örn Guðmundsson, en þeir eru þaulreyndir tónlistarmenn og skemmtikraftar.

Þeir hafa unnið saman til margra ára, þar á meðal í hljómsvetinni Buff sem er ein vinsælasta hljómsveit landsins. Lóa fær þá til að segja sér frá bransanum, duttlungum hans og spaugilegu hliðunum og hvað það er sem þarf til að tolla saman í góðri grúppu.

Þessi þættir Lóu fjalla einmitt um vinskapinn öðru fremur, allar hliðar hans og þar með talið þær óvæntu, en gestir hennar í þáttunum eru jafnt vinir og vinkonur, systkini og hjón og raunar pör af öllu tagi. 

Þáttur Lóu er endursýndur í dag og aftur um helgina, en er einnig kominn á vef stöðvarinnar í heild sinni og í klippum.