Hannes líkir ummælum um sjálfstæðisflokkinn við hatursorðræðu: „ef hann kærir mig þá bara gerir hann það“

Prófessorinn og Sjálfstæðismaðurinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson virtist allt annað en ánægður með ummæli Rögnu Birgisdóttur um Sjálfstæðisflokkinn. „Sjálfstæðisflokkurinn er glæpasamtök,“ skrifaði Ragna á einum vettvangi.

Hannes birti því næst skjáskot af ummælunum á Facebook síðu sinni þar sem hann spurði hvort ummæli Rögnu myndu ekki flokkast sem hatursorðræða og hlaut Hannes nokkrar undirtektir við spurningu sinni.

Segja flokkinn vera sértrúnaðarsöfnuð

„Þetta er aðallega rugl,“ skrifar Ragnar Önundarson við færsluna; „Ekki ef það kemur frá vinstri vængnum,“ skrifar annar og benda nokkrir á að um skilgreiningaratriði sé að ræða. Þá eru nokkrir sem taka undir með Rögnu og líkja Sjálfstæðisflokknum við sértrúnaðarsöfnuð.

„Það er sá munur á hægrimönnum og vinstrimönnum að hægrimenn fara ekki að grenja þó einhver skjóti á þá. Vinstrimenn hins vegar grenja, og grenja hátt,“ skrifar annar. Svo virðist þó nokkrir telja að Hannes hafi gerst sekur um slíkt með því að birta mynd af ummælunum.

 

af hverju eru hægrimenn svo fkn viðkvæmir? pic.twitter.com/iSWzXhCwA3

— sveppi (@sveppalicious) January 25, 2020

 

„Af hverju eru hægrimenn so fkn viðkvæmir,“ skrifar einn á Twitter um málið.

DV hefur það eftir Rögnu að hún hafi aldrei átt í samskiptum við Hannes og að hún hafi ekki áhuga á að „munnhöggvast við manninn“ en segir að ef að Hannes telji hana hafa brotið lög þá eigi hann bara að kæra sig til lögreglu.

„Það breytir ekki skoðun minni að Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn glæpasamtök enda verk þeirra sem sýna það hér í samfélaginu. Ef hann kærir mig þá bara gerir hann það,“ sagði Ragna í samtali við DV.