\"Mér finnst Vigdís Hauksdóttir standa sig ágætlega. Hún vinnur fyrir greiðendur, ekki eyðendur, þá, sem skapa verðmætin í stað þess að skipta því, sem aðrir skapa.\"
Þetta skrifar hannes Hólmsteinn Gissurarson, stjórnmálafræðiprófessor á fésbókarsíðu sína í dag - og kemuyr þar Vigdísi Hauksdóttir, formanni fjárlaganefndar til varnar: \"Hún ber hag hinna fjölmennu hópa fyrir brjósti, ekki aðeins háværra og aðgangsfrekra sérhagsmunahópa, sem virðast hafa ótakmarkaðan aðgang að sumum fjölmiðlum.\"
Vigdís hefur verið harðlega gagnrýnd síðustu daga fyrir ókurteisi í garð forstjóra Landspítalans á fundi fjárlaganefndar nýverið, en hún vændi hann þar um væl og betl. Á samfélagsmiðlum hefur hún fengið það óþvegnara en einatt áður fyrir framkomu sína sem mörgum þykir ekki hæfa svo hátt settum þingmanni.
En hún á greinilega hauk í horni - og Hannes líka.