Hannes Hólmsteinn tók Kosningavitann: „Augljóslega mótaður af einhvers konar Samfylkingarfólki“

Margir hafa prófað Kosningavitann, próf á netinu þar sem þú svarar fjölmörgum spurningum og getur þannig staðsett þig á hinum pólitíska ás. Fyrirfram er svo búið er að staðsetja flokkana sem eru í framboði til Alþingis og á prófið þannig að aðstoða fólk að finna flokk til að kjósa í komandi Alþingiskosningum.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ, segir prófið gallað.

„Þessi kosningaviti er um margt gallaður, og þyrfti langt mál til að rekja það. Hann er augljóslega mótaður af einhvers konar Samfylkingarfólki, jafnaðarmönnum, sem vilja vera góðir fyrir annarra manna fé og sötra rauðvín í Brüssel,“ segir Hannes á Facebook.

„En ég tók þetta próf engu að síður, og hér er niðurstaðan, sem ætti ef til vill ekki að koma á óvart.“