Hannes hólmsteinn: „martröðin á sér litla stoð í veruleikanum“

Hannes Hólmsteinn skrifaði í Morgunblaðið í gær um grein sem breski metsöluhöfundurinn og þinmaðurinn Matt Ridleys birti í tímaritið Spectator.

Í greininni skrifar Ridley um þróun heimsins á áratugnum sem var að líða og vitnar Hannes í greinina sem hann segir sýna að heimurinn fari svo sannarlega batnandi.

Þurfum minna land og minna af efnum

„Tekjudreifing á heimsvísu hefur hefur orðið jafnari, aðallega vegna þess að í Asíu og Afríku hefur hagvöxtur verið örari en í Evrópu og Ameríku,“ skrifar Hannes, og bætir við að pistill Ridleys sýni að mannkynið noti miklu minna af alls kyns efnum og að minna land þurfi undir landbúnað.

Hægst hafi á fólksfjölgun

En Hannes vill líka geta þess sem hann segir Ridley ekki minnast á pistli sínum:

„Þess má líka geta, þótt Ridley minnist ekki á það í pistli sínum, að mjög hefur hægt á fólksfjölgun í heiminum. Martröðin um sífellt fleira fólk að eltast við sífellt færri auðlindir á sér lita stoð í veruleikanum.“

Þess fyrir utan sé líka næga orku að fá í kjarnorkuverum.