Hannes Hólmsteinn kallar eftir afsögn ráðherra vegna bóluefna

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir fullt tilefni til að Svandís Svavarsdóttir, heilbirgðisráðherra, víki úr embætti. Tilefni ummæla Hannesar er frétt Bloomberg að Ísland sé eina landið meðal Vesturlanda sem hefur ekki tryggt sér kórónuveirubóluefni sem dugar fyrir alla íbúa landsins.

„Þarf heilbrigðisráðherra ekki að víkja? Mér virðist vera fullt tilefni til þess,“ segir Hannes Hólmsteinn í færslu á Facebook. „Ekki stóðu Vinstri grænir með Sigríði Andersen, þegar hinn fáránlegi dómur í Strassborg var kveðinn upp, þótt hann fæli í raun í sér gagnrýni (óréttmæta) á vinnubrögð Alþingis frekar en dómsmálaráðherra.“

Samkvæmt úttekt Bloomberg hafa Íslendingar tryggt sér bóluefnaskammta fyrir 103.000 manns, eða 29% landsmanna.

Heilbrigðisráðuneytið sendi frá sér tilkynningu í kvöld þar sem segir að íslensk stjórnvöld hafi tryggt bóluefni sem dugir fyrir 87% þjóðarinnar í gegnum samstarf Evrópuþjóða með samningum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Búið sé að skrifa undir samninga við lyfjaframleiðendurna Pfizer og Astra Zeneca sem tryggja bóluefnaskammta fyrir 200.000 einstaklinga.

Þá segir einnig að samningur við bóluefnaframleiðandann Janssen verði undirritaður þann 23. desember, muni tryggja Íslandi skammta fyrir 117.500 manns. Búast má við fyrstu sendingu bóluefnis hingað til lands fyrir áramót, er það bóluefni fyrir um 5.000 manns, segir sóttvarnarlæknir að búast megi við takmörkunum fram á seinni helming næsta árs.