Hannaði þríkrossinn fyrir páfann

„Það hefur verið minn aðall, að smíða allt og margt sem aðrir nenna ekki að smíða. Maður hefur smíðað fyrir presta og preláta og kónga og biskupa og páfann meira að segja. Á sínum tíma hannaði ég þríkrossinn ásamt Ásgeiri Gunnarssyni. Fyrsta þríkrossinn fékk frú Vigdís Finnbogadóttir og svo kom páfinn í heimsókn til landsins og honum var færður þríkross sem nú er í Vatíkaninu. Það er gaman að renna þar við og sjá handverk eftir sjálfan sig“, segir Sigurður G. Steinþórsson gullsmíðameistari  og eigandi verslunarinnar Gull og silfur.

Sigurður var gestur Björns Jóns Bragasonar í Lífinu í sjónvarpsþættinum 21 á Hringbraut þriðjudaginn 18. desember.

Fjölskyldufyrirtæki

Sigurður stofnaði Gull og silfur árið 1971 og hefur fyrirtækið alla tíð verið í eigu sömu fjölskyldu, enda um mikið fjölskyldufyrirtæki að ræða. Kona Sigurðar, Kristjana Ólafsdóttir verslunarstjóri, hefur unnið hjá fyrirtækinu alla tíð og Steinþór Sæmundsson faðir Sigurðar og Magnús Steinþórsson bróðir hans, unnu hjá fyrirtækinu um árabil. Í dag starfar einnig hjá fyrirtækinu gullsmíðameistarinn Sólborg S. Sigurðardóttir, dóttir Sigurðar og Kristjönu.

„Ég var í myndlistarskóla í Reykjavík og ætlaði að fara þá leið að fara í arkitektúr, hef gaman að sköpun, teikningu og þvíumlíku. Svo veiktist pabbi sem var gullsmíðameistari og ég fór að vinna með honum og hjálpa honum og fór svo að læra gullsmíði því ég kunni svo vel við mig. Fékk þarna útrás fyrir hönnun og lifibrauð, gat sem sagt lifað af því sem var skemmtilegt í mínum huga“, segir Sigurður um hvernig það kom til að hann lagði gullsmíði fyrir sig.

Viðtalið við Sigurð í heild sinni er að finna hér að neðan: