Hanna bara óbreyttur þingmaður!

Karl Ágúst Úlfsson fór vitaskuld á gamalkunnugum kostum í inngangi að þætti sínum Helginni á föstudagskvöld og talaði þar bæði um Landeyjarhöfn og Vaðlaheiðargöng og lekamálið og Illugamálið og allt þetta dásamlega sem eitt og lítið land hefur upp á að bjóða.


Gefum kappanum orðið: "Landeyjahöfn hefur verið lokuð síðan einhvern tímann í fyrra og önnur samgöngumál þjóðarinnar hafa verið í miklum ólestri vegna ótíðar í vetur. Nú er útlit fyrir að helsta samgöngubót Íslands á næstu misserum væri að finna leið til að sigla Herjólfi í gegnum Vaðlaheiðargöngin."


Og áfram: "Og talandi um rándýran leka: Hanna Birna Kristjánsdóttir tók aftur sæti á Alþingi, í þetta sinn ekki sem ráðherra, heldur sem óbreyttur þingmaður. Margir höfðu bundið vonir við að Hanna Birna tæki sæti sem breyttur þingmaður, en það verður ekki á allt kosið."


Hann er ekki hættur: "Og Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra ber alfarið á móti því að hann hafi gengið erinda orkufyrirtækisins Orka Energy vegna þess að fyrirtækið hafi hlaupið undir bagga með honum fjárhagslega, heldur einmitt þrátt fyrir það. Já, er það ekki alveg óþarfi að láta menn gjalda þess þó að þeir reyni að múta manni?" 


Hann  kann þetta, leikarinn knái: "Og þetta var vikan þegar Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra lagði frumvarp um makrílkvóta fyrir Alþingi og ætlast til þess að úthlutun Fiskistofu á kvótanum til eiginkvenna framsóknarþingmanna fari fram í strætó á leiðinni til Akureyrar. Vel gert, Sigurður. Og í vikunni skullu verkföll á okkur af fullum þunga. Sjúklingar komast ekki í nauðsynlegar skoðanir, það er orðið þröngt á svína- og kjúklingabúum, það er orðið erfitt að ná í pizzu og djúksteiktan kjúkling, en -- guði sé lof: við fáum að taka þátt í Eufovision þrátt fyrir verkfallið. Og Sigmundur Davíð bendir á að ef verkfall dýralækna teygist á langinn gætu Íslendingar endað á að leggja sér útlent nautakjöt til munns, en það veldur persónuleikabreytingum, eins og allir vita."


Loks þetta: "Og Samfylkingin fagnar 15 ára afmæli sínu um þessar mundir. Að vísu hefur fylgið hrunið svo hratt af flokknum að það verður einungis eitt kerti á afmælistertunni. Eitt mannkerti, sem heitir Árni. Og í tilefni af afmælinu hefur Samfylkingin ákveðið að leggja niður neyðarflugbrautina á Reykjavíkurflugvelli svo að fylgið komist ekki alveg jafnhratt í burtu. Vel gert."


Þátt Karls Ágústs má sjá í heild sinni undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is svo og klippur úr honum á forsíðu vefsins.