Verkfræðistofan EFLA kemur að hönnun og ráðgjöf varðandi mögulega ylströnd sem yrði einskonar Nauthólsvík Austurlands ef áform nokkurra framsækinna einstaklinga ganga eftir.
Hugmyndin er að fá Hitaveitu Austurlands til að dæla heitu vatni í Urriðavatn sem er skammt norðan Fellabæjar, sækja síðan svartan sand í Héraðsflóa en þar er nóg af honum - og bygfgja loks upp fullkomna baðstrandaaðstöðu fyrir ferðamenn líkt og gert hefur verið í Nauthólsvík.
Hugrún Hjálmarsdóttir byggingarverkfræðingur og fagstjóri EFLU á Egilssöðum lýsti aðkomu fyrirtækisins að þessu verkefni í þættinum Atvinnulífið á Hringbraut í gærkvöld en þar kom augljóslega fram að verkfræðistofan kemur að fjölþættari verkefnum um allt land en tölu verður komið á í fljótu bragði.
Þáttinn má nálgast undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is en hann er seinnihluti umfjöllunar sjónvarpsstöðvarinnar um verkfræðistofuna EFLU.