Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar telur hækkun skatts á ferðaþjónustu af hinu góða. RÚV segir frá þessu í dag.
Hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu sé liður í einföldun á skattkerfinu. Og því af hinu góða hefur RÚV eftir Hönnu Katrínu. Ferðaþjónustan hér á landi hafi verið í gríðarlegri sókn.
Hanna Katrín sagði að ferðaþjónustan sé nú komin á þann stað að það sé þörf á mörgu öðru í íslensku samfélagi en að veita þessari atvinnugrein skattaívilnanir umfram aðrar.
Á vef Viðreisnar segir um skattamál að skattkerfið verði endurskoðað með það að markmiði að auka skilvirkni þess og fækka undanþágum og íþyngjandi reglum.
Hanna Katrín er ekki að boða neitt sem ekki var kunnugt kjósendum Viðreisnar. Eða hvað? Þetta er boðað á vefsíðu flokksins.
Verði þessi áform ríkisstjórnarinnar að veruleika mun það hafa í för með sér grafalvarlegar afleiðingar segja oddvitar ferðaþjónustunnar. Afleiðingarnar verða hvað alvarlegastar fyrir landsbyggðina.
Vegið er að framtíðarmöguleikum greinarinnar segja talsmenn greinarinnar.