Hanna forrit til að finna dorrit


Höskuldur Þráinsson íslenskufræðingur, Mývetningur og prófessor til langs tíma hjá Háskóla íslands þykir hafa sýnt beitta takta með vísu sem hann kastaði fram á samfélagsmiðli í gærkvöld.
Höskuldur reit þá færslu vegna aflandsmála forsetahjónanna undir fyrirsögninni: Allt týnt.

Þannig mælist Höskuldi:

\"Nú er ekki nóg með það að fjársjóðir séu í felum, þótt enginn kannist við það, heldur er forsetafrúin líka týnd: Hún á ekki heima hér, hún á ekki heima í Bretlandi og þegar hún kom til Ísraels um árið vildu þeir ekki kannast við hana þar. Að hætti bögubósa mætti láta rímið vinna fyrir sig en láta andagiftina lönd og leið og segja sem svo:


Helsta málið held ég sé
að hanna forrit
til að sækja felufé
og finna Dorrit.


Góður rómur hefur verið gerður að yrkingum prófessorsins á facebooksíðu íslenskufræðingsins, enda um fátt meira rætt þessa dagana en spillingu íslenskra þjóðhöfðingja og kærkomið í huga margra að finna spaugilegar hliðar á málinu og skapa úr þeim list.