MIklar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlinum Twitter eftir að Hanna Björg Vilhjálmsdóttir tók undir færslu aktívistans Elísubetar Ýrar Atladóttur á Facebook sem segir konur ekki þurfa vera næs þegar þær tala gegn ofbeldi, þó það sé kallað BDSM eða samþykki.
Vísar Elísabet Ýr svo til viðtals Hönnu Bjargar og Siggu Daggar í Kastljósinu í vikunni þar sem Hanna Björg þótti fara yfir strikið með ókurteisi og baðst hún eftir þáttinn afsökunar á framferði sínu.
Undir færsluna skrifar Elísabet Ýr svo að hún styðji kink-shaming alla daga, alltaf.
„Vona að þið skammist ykkar vel og vandlega fyrir að prómótera og normalísera ofbeldi og fyrir að gera konum og stelpum erfiðara fyrir að setja mörk og með því að láta sem þetta snúist allt bara um töfrað og útópískt „samþykki“, sem er allt of einfaldar fyrirbæri þegar við BÚUM VIÐ NAUÐGUNARMENNINGU,“ skrifar Elísabet Ýr jafnframt í færslu sína.
Undir þetta virðist Hanna Björg taka í kommentakerfinu og varð allt vitlaust á Twitter í kjölfarið eins og sjá má hér að neðan.
— Ólöf Tara (@OlofTara) January 29, 2022
Ég upplifði svo mikla bullytakta frá Hönnu í Kastljósinu. Svo kom afsökunarbeiðni... frekar hrá samt. Nei nei, kemur ekki pía á FB með ógeðslegar yfirlýsingar og talar viðbjóðslega til fólks og Hanna bara supportar það? Ég er hér með búin að missa ALLT álit á þessari konu!
— 𝚁 𝙰 𝙶 𝙶 𝙰 🦋 (@raggaj89) January 29, 2022
Ég er svo triggeruð að mér er flökurt.
— Ólöf Tara (@OlofTara) January 30, 2022
Ég á engin orð, bara engin.
Þið sem liggið undir ásökunum um að vera ofbeldismanneskjur vegna hneigðar, þið eigið alla mína samúð.
Hanna Björg á twitter: BDSM er ekki ofbeldi 😊
— 💎 Donna 💎 (@naglalakk) January 29, 2022
Hanna Björg á facebook: BDSM er ofbeldi
ég er í áfalli yfir þessu
— Edda Falak (@eddafalak) January 29, 2022
Að ég segist elska konu sem sendir með stuðning - lestu sem ég segi ,,bdsm er ofbeldi”? Nú er ég alveg hætt að skilja.
— Hanna Björg (@HannaBVilhj) January 29, 2022
Nú er mín upplifun að þú hafir ekki áhuga á að hlusta á mig. Það er eins og viljinn til að mistúlka sé eindreginn.
— Hanna Björg (@HannaBVilhj) January 29, 2022