Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, framhaldsskólakennari og kynjafræðingur, og lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson tókust á í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
Hanna Björg hefur verið mikið í umræðunni undanfarið og þar ber helst að nefna KSÍ-málið svokallaða. Sigurður hefur einnig komið víða við undanfarið, þó með heldur öðrum hætti en Hanna Björg. Hann hefur kallað Hönnu og fleiri konur ofbeldismenn í kjölfar málsins og gefið út lista yfir konur sem hafa beitt sér gegn nauðgunarmenningu.
Í þættinum í morgun er óhætt að segja að ekki hafi farið mjög vel með þeim Hönnu Björgu og Sigurði.
Hanna Björg sagði konur og þolendur kynferðisofbeldi vera komna með nóg. Nú væru þolendur að snúa bökum saman og mynda samtakamátt og krefjast réttlætis. Hún segir þolendur vera leita eftir viðurkenningu á því að þau hafi verið beitt ofbeldi. Hins vegar sé Sigurður að reyna reka þolendur aftur ofan í myrkrið og þjáningu.
Sigurður var ekki alveg sammála því og sagðist ekki vera reyna reka þolendur ofan í neina holu. Hann teldi þó rétt að siðuðu samfélagi líkt og þessu teldi hann rétt að þeir sem teldu sig hafa orðið fyrir ofbeldi leituðu til yfirvalda.
Viðurkenndi Sigurður þá að þolendur kynferðisofbeldis hefðu kannski ekki alltaf fengið þær móttökur sem þau ættu skilið hjá viðkomandi stofnunum.
Þá sagði Sigurður jafnframt að kannski þyrfti að leiða fólk saman, sem dæmi tók hann einstaklinga í ofbeldissamböndum. Tilgangurinn með því væri að finna út hvað gerðist en hann benti á að í yfirheyrslum gæti fólk valið að þaga. En ef sama fyrirbæri væri notað og til dæmis í forræðisdeilum foreldra þar sem sálfræðingur er á staðnum væri kannski hægt að finna lausnir.
Hanna Björg var ekki lengi að grípa boltann á lofti, „þetta er svo mikið þvaður.“
Sigurður sagði að vegna öfganna væri aldrei hægt að eiga málefnalegar umræður um þetta.
„Fyrirgefðu Sigurður, ég bara get ekki annað en hlegið að þér,“ sagði Hanna Björg þá.
Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni á vef Vísis.