Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði í samtalinu á RÚV að það væri umhugsunarefni hversu illar konur haldast í stjórnmálum, þær staldri gjarnan skemur við þar en karlarnir. Þessi staðreynd hefði nokkur áhrif á þá ákvörðun hennar að vilja halda áfram - þrátt fyrir áföll á ráðherrastóli, sem hún hafi yfirgefið eftir mikil átök og umtal. Nú sé það að baki og hín vilji leggja sitt lóð á vogarskálar í þeirri viðleitni að breyta Sjálfstæðisflokknum og almennt stjórnmálum landsins.
Hún sagði ennfremur í samtalinu við Óðin að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að laga sig betur að nýjum veruleika fólks. Flokkurinn ætti að draga úr áherslu á íhald en auka frjálslyndi - treysta fólki betur til að ráða sínum málum, þar á meðal með þjóðaratkvæðagreiðslum. Hún gagnrýnir orðræðu stjórnmálanna, og segir að ef læknar töluðu um hvorn annan á sama hátt og stjórnmálamenn gera, þá færi ekki nokkur maður til læknis.