Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi innanríkisráðherra og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ekki tilkynnt skrifstofu Alþingis um að hún sé væntanleg aftur á þing. Þetta staðfestir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, í samtali við Kjarnann sem birtir frétt um málið í miðli sínum í gær.
Heimildir vefsins herma að Hanna Birna stefni ótrauð á að snúa aftur til þingstarfa í þar næstu viku. Í fréttinni er rifjað upp að í bréfi sem Hanna Birna sendi Ögmundi Jónassyni, formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, 16. mars síðastliðinn, þar sem hún afþakkaði boð nefndarinnar um að ræða Lekamálið, hafi komið fram að hún hyggist snúa aftur á Alþingi eftir miðjan apríl.
Hanna Birna sagði af sér sem innanríkisráðherra 21. nóvember síðastliðinn vegna Lekamálsins og óskaði eftir ótímabundnu leyfi frá þingstörfum í kjölfarið. Hún þiggur ekki þingfarakaup á meðan.