Hanna birna nær 14 þingdögum

Hanna Birna Kristjánsdóttir hyggst taka aftur sæti á þingi eftir rétta viku, en fimm mánuðir eru liðnir frá því hún sagði af sér sem innanríkisráðherra eftir flest kurl lekamálsins svokallaða voru komin til grafar. Þegar Hanna Birna tekur sæti á þingi næstkomandi mánudag verða fjórtán dagar eftir af þinginu.

Um tíma var mjög á reiki hvort Hanna Birna myndi halda áfram sem óbreyttur þingmaður, en hún hefur notið stuðnings innan eigin þingflokks í þeim efnum og hefur Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagt ekkert vera til fyrirstöðu að Hanna Birna settist aftur á þing.


Hanna Birna hefur ekki reynslu sem óbreyttur þingmaður, en hún settist strax á ráðherrastól þegar hún var fyrst kjörin á Alþingi Íslendinga vorið 2013. þaðan kom hún beint úr borgarstjórn Reykjavíkur.


Hanna Birna er sjötti íslenski ráðherrann sem segir af sér embætti í lýðveldissögu Íslendinga - og fer í sögubækur fyrir að vera fyrsti kvenráðherrann sem tekur pokann sinn.