Hanna birna hættir í stjórnmálum

Hanna Birna Kristjánsdóttir mun ekki gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu fyrir næstu kosningar og tilkynnti þá ákvörðun sína í dag í bréfi sem hún sendi sam­flokks­mönn­um sín­um. Hanna Birna hef­ur setið á þingi frá ár­inu 2013 og varð þá innanríkisráðherra til ársins 2014 þegar hún sagði af sér.

Hún leiddi lista Sjálfstæðismanna í  Reykja­vík­ur­kjör­dæm­i suður. Ljóst verður í prófkjöri flokksins hver mun taka við forystunni í kjördæminu í stað Hönnu Birnu en vænta má mikilli baráttu um sætið enda flokkurinn með gott fylgi í kjördæminu. Hringbraut ræðir við Hönnu Birnu í þættinum Þjóðbraut á morgun.