Hanna Birna fékk morðhótanir - Settist niður með börnunum og ræddi neyðarhnappinn

Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi innanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir frá því að sér hafi ítrekað verið hótað lífláti og að hún hafi gengið með neyðarhnapp á sér svo mánuðum skiptir.

Hanna Birna var gestur í útvarpsþættinum Segðu mér á Rás 1 í gær. Hún sagði að þegar hún hafi þurft að setjast niður með börnunum sínum til að útskýra öryggiskerfi og virkni neyðarhnappa ákvað hún að hætta í pólitík.

Hanna Birna var mikið í kastljósinu á árinum 2013-2014 þegar að Lekamálið svokallaða kom upp. Lekamálið kom fyrst upp í lok nóvember 2013 og varðaði innanríkisráðuneytið undir stjórn Hönnu Birnu. Málið náði hápunkti rúmu ári síðar þegar Hanna Birna sagði af sér ráðherraembætti eftir að Gísli Freyr Valdórsson aðstoðarmaður hennar játaði að hafa lekið trúnaðarupplýsingum í formi minnisblaðs um nígerískan hælisleitanda úr ráðuneytinu í fjölmiðla. Gísli Freyr var síðar dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir verknaðinn.

Í viðtalinu við Segðu mér talar Hanna Birna opinskátt um þennan tíma og segir frá því að hún hafi hlotið morðhótanir og þurfti að þiggja sérstaka öryggisgæslu í um sex mánuði vegna þess. „Það gerðust hlutir á minni vakt sem mér fannst ég þurfa að taka ábyrgð á og tók ábygrð á. En ég veit það í hjarta mínu að ég reyndi að gera hlutina rétt. Einhver í hörku sinni getur sagt „hún átti þetta bara skilið“ en þegar svona er farið að bitna harkalega á fólkinu sem þér þykir vænst um þá settumst ég og maðurinn minn niður og sögðum, þetta er orðið gott."