Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur með bréfi til félaga innan Sjálfstæðisflokksins lýst yfir að hún sé hætt við framboð til varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Skýringarnar sem hún nefnir eru nánast þær nákvæmlega sömu og fram komu í fréttaskýringu Hringbrautar á dögunum en 3 vikur eru nú í Landsfund Sjálfstæðisflokksins. Fyrirsögn fréttaskýringar Hringbrautar var að Hanna Birna kysi að sækja ekki í frekari átök.
Í bréfinu sem Hringbraut hefur undir höndum segir m.a. að hún sæki ekki sjálfviljug í hörð pólitísk átök í bráð og er vísað til lekamálsins.
Mikil andstaða var innan Sjálfstæðisflokksins við þá ákvörðun Hönnu Birnu að bjóða sig fram til varaformanns eftir það sem undan er gengið og er þegar búið að skora opinberlega á Ólöfu Nordal úr ýmsum áttum.