Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur afráðið að bjóða sig aftur fram til varaformanns Sjálfstæðisflokksins á næsta landsfundi hans, en hún varð sem kunnugt er að segja af sér sem innanríkisráðherra á síðasta ári.
Landsfundurinn verður haldinn í október og enn er óvíst hverjir munu sækjast eftir varaformennsku innan flokksins, aðrir en Hanna Birna.
Óvissa hefur ríkt um hvort Hanna Birna ætli að bjóða sig fram aftur til varaformennskunnar og fá þannig endurnýjan umboð í forystu flokksins, en nú hefur hún tekið af skarið.
Ákvörðun hennar er talin draga úr líkunum á því að Ólöf Nordal, arftaki Hönnu Birnu á ráðherrastóli taki slaginn, en hún hefur ekki útlokað framboð í viðtölum að undanförnu.
Bjarni Benediktsson, formaður flokksins hefur sagst treysta Hönnu Birni til frekari verka í stjórnmálum, en hún verði að endurnýja umboð sitt til að fá úr því skorið hvernig flokksmenn meta stöðu hennar.
Hanna Birna sagði í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld að hún teldi sig hafa góðan stuðning innan flokksins.