Forsetaframbjóðandinn og auðjöfurinn Donald Trump hefur verið mikið á milli tannanna á fólki vegna umdeildra ummæla frá því að kosningaherferð hans hófst. Að þessu sinni gagnrýndi hann að öldungardeildarþingmaðurinn og fyrrum forsetaframbjóðandinn John McCain væri útnefndur sem stríðshetja.
Á fundi í Iowa um helgina var McCain lýst sem stríðshetju en Trump var ósáttur við orðalagið: „Hann er ekki stríðshetja. Hann er stríðshetja vegna þess að hann var tekinn til fanga. Mér líkar betur við fólk sem hefur ekki verið tekið til fanga.“
McCain sinnti herþjónustu í Víetnam stríðinu og var tekinn til fanga árið 1967 eftir að flugvél hans var skotin niður. Honum var haldið föngum í rúm fimm ár.
Ummælum Trump var ekki vel tekið á fundinum og hafa mótframbjóðendur hans íttrekað fordæmt þau. Hann notaði samfélagsmiðilinn Twitter stuttu síðar til að reyna að draga úr skaðanum: „Tekinn til fanga eða ekki, allir hermenn okkar eru hetjur!\"
Hér má sjá hin umdeildu orð falla á fundinum í gær.
Trump hefur nýlega látið umdeild orð falla um innflytjendur, en hann vill herða innflytjendastefnu Bandaríkjanna. Í tilkynningu um framboð sitt sagði hann til að mynda að mexikóskir innflytjendur hafi slæm áhrif á Bandaríkin; þeir væru að stela störfum innfæddra og flytja nauðgara og glæpi yfir til Bandaríkjanna.
Samkvæmt nýlegum skoðanakönnunum hefur Trump þó mælst með mest fylgi þeirra Repúblikana sem sækjast eftir tilnefningu flokksins.