Handteknar á föstudaginn langa

Hollenskar mæðgur voru úrskurðaðar í gæsluvarðhald til 15.apríl fyrir tilraun til að smygla tæplega 20 kílóum af fíkniefnum til landsins.  Þær voru handteknar á föstudaginn langa þegar tollverðir fundu amfetamín, kókaín og MDMA í ferðatöskum þeirra.

 


Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að konurnar hafi komið til landsins með flugi frá Amsterdam á föstudaginn langa.  Þær áttu svo pantað flugfar til baka á mánudagsmorgun, en fóru hvergi eftir fund tollvarða.


Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók svo íslenskan karlmann vegna málsins í kjölfarið og sætir hann einnig gæsluvarðhaldi. Málið er unnið í náinni samvinnu Tollstjóra, lögreglustjórans á Suðurnesjum, lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og tengslaskrifstofu Íslands hjá Europol.


Í tilkynningu frá lögreglu segir að frekari upplýsingar verði ekki veittar þar sem það sé á viðkvæmu rannsóknarstigi