Lögreglan á Suðurnesjum handtók karlmann um helgina sem er grunaður um að hafa brotið lög um atvinnuréttindi útlendinga. Var maðurinn með tíu manna hóp í Bláa lóninu og reyndist hann ekki vera með atvinnuréttindi hér. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurlandi.
Var maðurinn færður til skýrslutöku á lögreglustöð og viðurkenndi að hafa verið með hópinn á sínum snærum.
Hins vegar neitaði hann að hafa stundað fararstjórn hér á landi.