Handsal may og foster

Flokkarnir tveir hafa náð samkomulagi um stjórnarsáttmála.

DUP mun að öllum líkindum einungis heita að verja stjórnina gegn vantrausttilögum stjórnarandstöðunnar og kjósa með fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar Theresa May en lengra getur DUP ekki gengið.

Líkast til verður fyrirfram samið um stuðning þingmanna DUP við helstu frumvörp ríkisstjórnarinnar.

DUP er þess utan heitið umtalsverðum fjárveitingum til menntamála og samgöngumála og heilbrigðismála á Norður Írlandi. Talað er um allt að tvo milljarða sterlingspunda úr ríkissjóði. Oddviti DUP neitar þessu sem og þingmenn DUP.

Hagkerfi Norður-Írlands er minnst þeirra fjöggura sem mynda hagkerfi Sameinaða konungdæmisins. Nú vinna flestir íbúanna við þjónustu og þar af flestir við opinbera þjónustu.

Samfélagið er og verður klofið í tvær ósættanlegar fylkingar Sambandssinna (DUP) og Þjóðfrelsissinna.

Sameinað Írland er því lang undan þó sú krafa einkenni sjónarmið Þjóðfrelsissinna. Hættan á nýrri vargöld er því aldrei langt undan.   

rtá

Nánar www.bbc.com