Handboltastjörnur í lóa og lífið

Það verður glatt á hjalla í skemmtilegum og líflegum viðtalsþætti Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur í kvöld, en þar munu tvær helstu handboltastjörnur landsmanna skína skært, þær Herdís Sigurbergsdóttur og Ragnheiði Stephensen.

Þættirnir Lóa og lífið fjalla um vinskap af öllu tagi, inntak hans og eðli og hvernig honum er viðhaldið, en gestir Lóu í þessum þáttum eru jafnt hjón, systkini, samstarfsfélagar eða pör af öllu mögulegu tagi sem hafa tengst órofa böndum.  

Þær Herdís og Ragnheiður voru lykilleikmenn í sigurgöngu Stjörnunnar á 10. áratug síðustu aldar. Lóa fær þær til að tala um hvernig það er að vera hluti af handboltaliði og um samband þeirra innan sem og utan vallarins. Þær segja sögur úr hinum ýmsum ferðum sem handboltalið fara saman í ásamt því að gefa heilræði til þeirra sem vilja skara fram úr í íþróttum. Samband þeirra hefur náð langt fyrir utan línur handboltavallarins en þær ræða lykilinn að vináttu og sambandi þeirra í gegnum tíðina.

Lóa og lífið er á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:00 í kvöld og endursýnt strax klukkan 22:00.