Hamingja okkar er lyfseðilsskyld

Karli Ágústi Úlfssyni leiddist ekki frekar en fyrri daginn þegar hann byrjaði þátt sinn Helgina um síðustu helgi og fór yfir atburði líðandi stundar eins og honum er einum lagið; með háðið að vopni, en þáttinn má nálgast hér á hringbraut.is.

\"Þetta var vikan þegar sanddæluskipið Perla sökk í Reykjavíkurhöfn rétt um það bil sem skipið var að koma úr slipp,\" sagði hann \"en þar hafði gleymst að loka botnloka skipsins. Eins og kunnugt er hefur Perla verið notuð til að dæla sandi upp úr Landeyjahöfn. Nú er svo komið að sanddæluskipið er fullt af sjó en Landeyjahöfn, sem hefði þurft að vera full af sjó, er full af sandi. Nú hefði verið gott ef Reykjavíkurhöfn hefði verið full af sandi, því þá hefði skipið einfaldlega ekki getað sokkið svona djúpt - nú eða þá að Perlan hefði sokkið í Landeyjahöfn, það hefði líka getað virkað.\"

Nefnilega svo: \"Og á meðan vaskir björgunarmenn reyndu að ná Perlunni upp af hafsbotni reyndu aðrir vaskir menn að sökkva Ríkisútvarpinu. Skýrsla sem gerð var opinber fyrir nokkrum dögum sýnir svo ekki verður um villst að RÚV er ekki sjálfbært og fjárhagur fyrirtækisins á ekki eftir að vænkast fyrr en það hættir að flytja neikvæðar fréttir af störfum ríkisstjórnarinnar. Og eftir að Vigdís Hauksdóttir hafði lesið skýrsluna og séð að hún var alveg eins og beðið var um, heyrðist hún raula:

Ó, RÚV

ENGINN ELSKAR MIG Á RÚV

ENGINN ÞOLIR MIG Á RÚV OG ÉG ÆTLA AÐ STÚTA RÚV.

Og í vikunni blossaði líka upp áköf umræða um miðla og miðilshæfileika,\" hélt Karl Ágúst áfra, enda af nógu að taka: \"Fólk deilir um hvort hægt sé að eiga samskipti við framliðið fólk eða ekki og hvort eitthvað sé til sem heiti skyggnigáfa. Ég er sannfærður um að þessar gáfur eru til og ég vil nýta hæfileika miðla til dæmis til að ná sambandi við framliðin kosningaloforð. „Hér er komið gamalt loforð sem vill minna á sig. Þetta er loforð Framsóknarflokksins um afnám verðbóta á lánum. Kannast einhver við það? Enginn? Skrítið.“ Við ættum líka að fá miðla til að reyna að hafa uppi á fylgi Samfylkingarinnar og Bjartrar framtíðar. Í hvaða vídd skyldi það vera statt núna? Gætu ekki skilanefndir líka notað sér þjónustu miðla til að ná sambandi við framliðnar kennitölur? Eða gamlar bankainnistæður sem hafa flutt sig yfir móðuna miklu. Möguleikarnir eru ótæmandi,\" benti leikstjórinn á í þættinum og hefur mikið til síns máls.

\"Við fengum líka að vita í vikunni að við Íslendingar eigum heimsmet í neyslu á þunglyndislyfjum. Þetta vissum við reyndar fyrir, en nú erum við búin að slá öll fyrri met með því að stækka skammtana og nú er heildarneyslan farin að samsvara því að rúmlega öll þjóðin sé á lyfjum. Er það furða að við skulum vera hamingjusamasta þjóð í heimi,\" spurði gamli Spaugstofumaðurinn og brast enn á ný í söng:

\"ÍSLAND ER LAND ÞITT

ÞVÍ ERTU Á LYFJUM

ÍSLENSKA ÞJÓÐ, ÞÚ ERT GARGANDI SNILLD

ÍSLAND ER BEST ÞEGAR UPP ÞAÐ VIÐ RIFJUM

AÐ ÖLL OKKAR HAMINGJA ER LYFSEÐILSSKYLD

Og á meðan sanddæluskipið Perla liggur á botni Reykjavíkurhafnar heldur Landeyjahöfn áfram að fyllast af sandi og verður mjög fljótlega orðin vel brúkleg sem bílastæði. Og þá dettur mér það í hug - getur verið að það hafi gleymst að loka botnlokanum í Samfylkingunni og þess vegna sé hún að sökkva? mHvað veit maður,\" spurði kappinn enn og gat ekki annað en sett í brýnnar.

\"Og 80% af öllu fé sem íslensk fyrirtæki láta renna til stjórnmálaflokka renna til stjórnarflokkanna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks - og ef við lítum bara á fyrirtæki í sjávarútvegi, þá nemur þessi tala 90 prósentum. Það er gott til þess að vita að eitthvað af peningum útgerðarinnar komi til góða innanlands og lendi þar sem þörfin er mest. Ahh - sjávarútvegurinn. Öll rómantíkin - gömlu sjómannalögin — og nýju útgerðarlögin,\" sagði hann hugsi og rifjaði upp gamlan slagara:

\"SYNGJANDI SÆLL OG GLAÐUR

Í SJÓÐINA EYS ÉG FÉ

ÞAÐ ER GAMAN AÐ HAGSMUNAGÆSLU

SEM GLAÐIR MENN LÁTA Í TÉ

ER HUGMYND UM ALMENNA ÞJÓÐAREIGN

Á AUÐLINDUM LANDSINS ER SOKKIN

ÞÁ SKAMMTA ÉG SEÐLANA SITT Á HVAÐ

Í SJALLA OG FRAMSÓKNARFLOKKINN

Það er mjög gott samband í kvöld. Hingað er komin stjórnarskrá. Hún segir að sér hafi verið grandað með vofeiflegum hætti. Vá, nú er miðilsgáfan að taka af mér ráðin,\" sagði Karl Ágúst undir lok inngangsins í þættinum Helginni - og tók svo til við að ræða við séra Davíð Þór Jónsson, prófast á Austrfjörðum og gamlan Radíusbróður sem var gestur hans að þessu sinni.

Þátturinn verður endursýndur á Hringbraut annaðkvöld klukkan 21:30 og aftur 23:30.